Notkunarskilmálar

Samþykki þessara notkunarskilmála er forsenda notkunar á vefnum. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.

Óheimilt er að hlaða niður efni vefsins öðruvísi en í vafra til skoðunar eins og vefurinn kemur fyrir. Öll vinnsla á efni vefsins er óheimil. Heimilt er að vísa í síður vefsins á öðrum vefsíðum. Ljósmyndir eða myndbrot á vefnum eru varðar höfundarrétti. Upplýsingar á vefnum endurspegla innihald söluskrár okkar en eru birtar án skuldbindinga og með fyrirvara um villur. Séu upplýsingar á vefnum rangar eða teljast á einhvern hátt óbirtingarhæfar þarf að hafa samband við okkur til leiðréttingar.
Upplýsingar á vefnum eru ekki ábyrgðarskyldar og eru settar fram eftir bestu vitund, en eru ekki settar fram sem áskyldir kostir viðkomandi ökutækja eða vinnuvéla og upphefja því ekki rannsóknar- og skoðunarskyldu væntanlegra kaupenda og réttmæti þeirra. Við erum á engan hátt ábyrg gagnvart skaða sem hljótast kann af völdum skorts á upplýsingum eða rangra upplýsinga á vefnum. Við ábyrgjumst ekki að upplýsingar á vefnum séu ætíð aðgengilegar og uppfærðar, og erum á engan hátt ábyrg gagnvart skaða sem hljótast kann af völdum notkunar á vefnum.
Við notkun á vefnum er í einhverjum tilfellum spurt um persónulegar upplýsingar, t.d. við sendingu tilboða eða fyrirspurna. Þessar upplýsingar eru geymdar til að vinna úr þeim og bregðast við þeim. Notendur sem vilja ekki að við geymum upplýsingar um þá skulu ekki gefa upp slíkar upplýsingar! Vefurinn notar fótspor (cookies) í margvíslegum tilgangi. Persónulegar upplýsingar eru ekki vistaðar í fótsporum. Nánar er kveðið á um þetta í yfirlýsingu okkar um persónuvernd hér að neðan. Skilmálar þessir geta breyst án fyrirvara en gildandi útgáfa þeirra er ávallt aðgengileg á þessari síðu. Með notkun á vefnum samþykkir notandi þessa notkunarskilmála.

Lagalegir fyrirvarar

Upplýsingar á þessum vef eru samkvæmt okkar bestu vitund á hverjum tíma og er ekki tekin ábyrgð á viðskiptum sem gerð eru á grundvelli þeirra. Þá getum við ekki ábyrgst að upplýsingarnar séu réttar. Upplýsingar og skoðanir sem fram koma á vefnum geta breyst án fyrirvara.
Þær upplýsingar sem eru birtar á heimasíðu okkar fela á engan hátt í sér ráðleggingar til viðskiptavina um kaup eða sölu og bera notendur síðunnar einir ábyrgð á þeim fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á heimasíðunni.
Við berum ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum er birtast á heimasíðu okkar né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef okkar. Þá berum við ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn um skemmri eða lengri tíma.
Við eigum höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á þessum vef, nema annað sé tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki okkar þarf til að safna, vinna með, endurbirta upplýsingar sem hér koma fram, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis upplýsingarnar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að safna, vinna með, endurbirta þær, afrita eða dreifa þeim. Vélræn vinnsla, öflun eða skoðun gagnanna af forritum hvers konar er óheimil.
Lagalegur fyrirvari vegna tölvu­póst­sendinga
Upplýsingar sem kom fram í tölvupósti og eftir atvikum viðhengjum, sendum frá netföngum okkar, gætu innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og eru eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann ef það tengist ekki starfsemi okkar. Ef tölvupóstsending hefur ranglega borist einhverjum ber að gæta fyllsta trúnaðar, tilkynna sendanda og eyða mótteknum gögnum eins og kveðið er á um í gildandi lögum og reglum um fjarskipti.

Yfirlýsing um persónuvernd

Samþykki notkunarskilmála okkar hér að ofan er forsenda notkunar á þessum vef. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.

Vakin er athygli á því að þegar farið er inn á vefsíðu okkar vistast fótspor (e. cookies) í tölvu notandans. Þessi fótspor eru litlar textaskrár sem notaðar eru til þess að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu til samræmis við auðkenninguna ásamt því að greina heimsóknir á vefsíðuna. Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í fótsporinu.
Með því að samþykkja þessa skilmála um notkun á fótsporum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:
  • Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
  • Lengd innlita gesta
  • Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
  • Tegund skráa sem sóttar eru af vefnum
  • Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
  • Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
  • Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
  • Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður
Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur hafa áhuga á að skoða. Þannig getum við aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti fótsporum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum útgefenda flestra vafra.

Markhópagreining

Við notum tæknilausnir Google til að greina notendahópinn okkar í þeim tilgangi að sinna honum betur. Með því að stilla til Google Ads Settings á vef Google getur þú ákveðið að taka ekki þátt í slíkum greiningum.
Við notum gögn sem safnað er nafnlaust með Google Analytics til þess að bæta þjónustuna okkar.
Við leitumst aldrei við að greina hegðun notenda niður á einstaklinga heldur nýtum þessar upplýsingar aðeins í nafnlausum og almennum tilgangi. Þannig getum við bætt þjónustuna okkar með tímanum.