Þyngd hemlaðs eftirvagns 2.000 kg.
Þyngd óhemlaðs eftirvagns 750 kg.
Þyngd á tengibúnað eftirvagns 100 kg.
6 manna bíll, gistipláss fyrir 4 fullorðna (2x koja + hjónarúm) + 1-2 börn með því að leggja niður eldhúsborð og breyta í sa 180sm fleti.
Truma gasmiðstöð og vatnshitari (sjálfvirk), gaseldavél m 3 brennurum, sjálfvirkur, þrívirkur ísskápur með frysti (gas, 12V og 230V). Sturta og salerni. Fiammi markísa.
Reykskynjari, CO skynjari og gasskynjari. Tvöfalt geymasett, inverter (12V-230V). Sjálfvirkt slökkvikerfi í vélarúmi, við neyslugeymi og ofan við ísskáp.
Létum sérútbúa bílinn fyrir Evrópureisu. M.a. búið að styrkja geymslulest, útbúa skúffu sem boltast aftan undir bílinn (ekki á myndum), fínt til að geyma t.d. blautan farangur (blautgalla, báta oþh), auk þess sem á bílnum er áfyllingarstútur fyrir gas (hægt að fylla sjálfur á gaskútana um borð á evrópskum bensínstöðvum - ekki á Íslandi samt.
Sólarlokanir á öllum gluggum og flugnanet fyrir gluggum og hurð á húsi. Loftkæling í bíl. Laus 12V vifta (Fiammi) fylgir, hugsuð sem útsog í þakglugga en hægt að setja hana hvar sem hentar. 4x hjólagrind með festingum, bakkmyndavél.